Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að fólksflótti frá Íslandi er aftur farinn að aukast eftir að heldur hafði dregið úr honum á tímabili fyrir tveimur árum. Athygli vekur í þessu sambandi að uppbókað er á námskeið þar sem fólki er kennt að flytja til Noregs.
Tæplega ellefu þúsund landsmenn hafa flutt til útlanda frá síðustu aldamótum umfram þá sem skilað hafa sér til landsins. Svo virtist sem ákveðið jafnvægi væri að nást á þessu sviði fyrir tveimur árum þegar jafn margir fluttu út og komu heim, en fólksflutningarnir út tóku hins vegar kipp á síðasta ári þegar 760 fleiri Íslendingar fluttu til útlanda en til þess.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar hafa 370 fleiri landsmenn flutt til útlanda umfram aðkomna það sem af er þessu ári þannig að þróunin virðist halda áfram, útlöndum í vil.