Almenningur í landinu vill að sektir við farsímanotkun í bifreiðum verði hækkaður til muna, að því er fram kemur í nýrri viðhorfskönnun Samg0ngustofu sem hún lét gera í tilefni af yfirvofandi breytingum á sektarákvæðum á þessu sviði.
Nú er sektin 5 þúsund krónur fyrir að nota símann undir stúri, en hækkar senn í 40 þúsund krónur samkvæmt ákvörðun samgönguyfirvalda. Í könnun Samgöngustofu kemur í ljós að almenningur er á svipuðu róli og yfirvöld, vill að meðaltali fara með sektirnar upp í 33 þúsund krónur og fimmtungur aðspurðra vill fara með þær upp fyrir 60 þúsund, rétt um 8 prósent yfir 100 þúsund karlinn.
Athygli vekur að þeir þátttakendur í könnunni sem viðurkenndu þessi brot sín undir stýri vildu ekki síður hækka sektirnar en þeir sem kváðust ekki snerta símana sína undir stýri.