Fólk hætt við að koma til íslands

„Strax morguninn eftir að þessar aðgerðir voru boðaðar fóru íslensk ferðaþjónustufyrirtæki að fá símtöl utan úr heimi þar sem var verið að spyrjast fyrir um þetta. Ég er þegar búinn að sjá nokkur dæmi um að menn eru hættir við að koma til Íslands þannig að þetta er bara það sem gerist þegar menn beina svona aðgerðum að ferðaþjónustufyrirtækjum,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Eins og kunnugt er hófst atkvæðagreiðsla meðal félaga í Eflingu stéttarfélags klukkan tíu í morgun um hvort grípa eigi til vinnustöðvunar hjá starfsfólki í ræstingum á hótelum og veitingahúsum þann 8. mars næstkomandi. Kosningin, sem stendur yfir til fimmtudags, er fyrst og fremst rafræn en sérstök kosningarúta svo félagsmenn geti kosið fer einnig um á milli stærstu vinnustaða ræstingarfólks í ferðaþjónustunni, aðallega stórra hótela.

Um 8000 eru á kjörskrá og vinna á hótelum og veitingahúsum. Verði verkfall samþykkt leggja allt að 1000 ræstingastarfsmenn á hótelum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni niður störf þann 8. mars frá morgni til miðnættis. Fleiri skæruverkföll eru skipulögð á næstunni og beinast fyrst að ferðaþjónustunni.

Jóhannes Þór og Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu og forstjóri Center Hotels, eru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem þeir ræða þessi fyrirhuguðu verkföll og áhrif þeirra á ferðaþjónustuna.

Það kemur Kristófer á óvart að verkalýðsfélögin hyggist beina verkfallsaðgerðum að stærri hótelum eins og Center Hotels, þar sem starfa um 260 manns. „Að vissu leyti kemur það á óvart af því að stóru hótelin eru með sitt á hreinu. Eru með öfluga starfsmannastefnu, eru með fræðsluprógramm og skóla,“ segir Kristófer og bendir einnig á að ekkert af hans launafólki sem eru meðlimir Eflingar séu með strípaða taxta.

Nánar er rætt við Jóhannes Þór og Kristófer í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.