Fólk stóð grátandi og beið

Björgvin Halldórsson tónlistarmaðurinn segir í samtali við DV í dag að hann hafi horft á lagerhús Icewear brenna í gær en stórbruni varð í gærmorgun í Garðabæ.  Björgvin sem var einn fyrstur á staðinn eftir að slökkvistarfið hófst segir í samtali við DV: „Það er fólk hérna grátandi sem er að missa búslóðina sína\" en margir voru með búslóð og muni sína í geymslu á staðnum - í húsnæði Geymslna. Björgvin var með fágæta muni þar í geymslu og í samtalinu við DV bíður hann nú þess hvort eitthvað hafi bjargast.

var með í geymslu í Miðhrauni hafi brunnið. Eins og greint hefur verið frá í morgun varð stórbruni þar í morgun en Björgvin var með fágæta hluti í húsakynnum Geymslna. „Ég er nýbúinn að rýma hljóðverið mitt. Þetta eru segulbönd, fatnaður, hluti af búslóð, bara fullt af dóti. Ég er búinn að vera geymslu þarna í 10 ár\", segir hann við DV.