Fólk selur sumarbústaði eftir innbrot

Flestir setja sumarbústaðinn sinn á sölu ef brotist er inn til þeirra. Innbrotsþjófur fer inn fyrir persónuleg mörk fólks og fólk vill helst ekki dvelja í sumarhúsinu sínu eftir innbrot.

Þetta kemur fram í þættinum ,,Fólk með Sirrý” á Hringbraut í kvöld.

Hjörtur Freyr Vigfússon frá Securitas ræðir þessi mál.

Júlía Guðmundsdóttir segir sína upplifun af því að þjófar brutust inn á heimili hennar og læddust um innan um sofandi börn.

Öryggisráðgjafi gefur góð ráð til að gera innbrotsþjófum erfiðara fyrir. Má þar nefna að verkfæri og stigar eiga aldrei að liggja á lausu fyrir utan hús að nóttu til, tölvur og dýr tæki eiga ekki að blasa við vegfarendum, best er að draga fyrir glugga að nóttu til.  Besta þjófavörnin eru góð samskipti við nágranna.

Mörg fleiri ráð til að gera innbrotsþjófum erfitt fyrir koma fram í þættinum hjá Sirrý í kvöld.