Fólk sá húsin fljóta framhjá

Jón Svanberg Hjartarson, sem var 25 ára lögregluþjónn og björgunarsveitarmaður þegar snjóflóðið féll á Flateyri fyrir réttum 20 árum var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál á Hringbraut í gærkvöld.

Þátturinn er endursýndur í dag, en einnig sjáanlegur hér á hringbraut.is.

Hann var varaformaður björgunarsveitarinnar í þorpinu þegar ósköpin dundu yfir klukkan 04:00 aðfaranótt 26. október 1995, en þá æddu 150 þúsund tonn af þéttum snjó á 180 kílómetra hraða ofan úr Skollahvilft og færðu stóran hluta bæjarins á kaf, þar á meðal 32 hús þar sem tugir Flateyringa voru í fasta svefni. 20 þeirra fórust í flóðinu, en 25 björguðust.

Jón Svanberg, sem nú er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar lýsir fyrstu klukkustundunum eftir flóðið af hispursleysi og einlægni, en sjálfur segir hann að verkefni þessa örlagaríka dags hafi verið stærra en svo að tilfinningarnir hafi getað borið menn ofurliði. Það var ekkert um annað að ræða en að reyna að bjarga fólki af öllum mætti, enda útlit fyrir að utanaðkomandi hjálp bærist ekki til þessa einangraða þorps fyrr en eftir nokkrar klukkustundir, en bæinn hafði hreinlega snjóað á kaf á örfáum dögum. 

Jón Svanberg segist fljótlega hafa áttað sig á umfangi flóðsins, ekki síst eftir að hann heyrði lýsingu manns sem vaknaði upp við hvininn sem kom á undan flóðinu en hann sá efri hæð á húsi fljóta framhjá einum glugganum á sínu húsi eins og væri þar bátur á siglingu.

Hann lýsir óraunveruleika þess hvernig var að fá í hendurnar lík af barni í náttfötunum, en koma svo heim til sín eftir 28 tíma vakt og sjá sitt eigið barn hlaupa í fang sitt í álíka náttfötum - og leggjast svo til svefns undir fjöllunum, vitandi að Bæjargilið ofan við bæinn var ennþá fullt af snjó.

Það kom í hans hlut að bera kennsl á öll líkin 20 þegar björgunaraðgerðum lauk og ganga hús úr húsi og greina ættingjum og vinum frá örlögum fólksins.

\"Ég held að alla setji hljóða við að horfa á þetta samtal okkar,\" segir Sigmundur Ernir sem sjálfur var fréttaþulur á þessum árum og hefur sagt að eitt það erfiðasta sem hann gerði á þeim vettvangi um langt árabil hafi verið að lesa upp nöfn allra þeirra sem fórust í snjóflóðum á þessu ári, fyrst í Súðavík og svo aftur á Flateyri.

Viðtalsþátturinn Mannamál er frumsýndur á sunnudagskvöldum klukkan 20:30.