Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, fyrrum nemendi í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við Háskóla Íslands kveðst vera afskaplega stolt af þeirri ákvörðun forráðamanna háskólans að halda sameiginlega athöfn fyrir alla diplómanema á Menntavísindasviði. Áður var útskrft fólks með þroskahömlun aðskilin útskrift annarra.
„Þetta er besta niðurstaðan sem við gátum komist að,“ segir Steinunn í samtali við visir.is í dag, en hún barðist ötullega að því fyrir tveimur árum að útskriftarárgangur sinn fengi að sækja hefðbundnu útskriftarathöfnina í Laugardalshöll. Háskóli Íslands taldi það ekki möguleika þar sem að á grundvelli jafnréttissjónarmiða yrðu þá allir þeir sem útskrifast með gráðu úr diplómanámi að fá að vera viðstaddir athöfnina. Það eru fleiri hundruð einstaklingar. Diplómanemar í starfstengdu námi fyrir fólk með þroskahömlun bentu aftur á móti á að þeir hafi ekki færi á að sækja sér æðri menntagráðu og því gildi ekki sömu sjónarmið um þá og aðra diplómanema. Þeir eru aðeins 12 talsins og teknir inn annað hvert ár.
Fólk með þroskahömlun beygir hí
Fleiri fréttir
Nýjast