Tolli Morhens ræddir hispurslaust reynslu sína af því að fá krabbamein í þættinum Fólk með Sirrý á Hringbraut í gærkvöld, en tilefnið er Mottumars sem er árveknisátak Krabbameinsfélagsins gegn krabbameini karla.
Tolli kveðst í þættinum, sem nú er hægt að skoða hér á vef stöðvarinnar, hafa farið árlega í blóðprufu og tékk hjá heimilislækninum og þar hafi komið að því að eitthvað var að. Hann segir að karlmenn klikki ekki á því að fara með bílinn sinn í skoðun árlega og fara með hann á verkstæði alltaf ef gult ljós blikkar og jafnvel þó ekkert viðvörunarljós komi upp. En þó þeir sjálfir séu komnir á rauða ljósið fari þeir ekki í skoðun hjá lækni. Hér þurfi menn að taka sér tak.
Hann hvetur karla til að fylgjast með líðan sinni. Sjálfur byrjaði hann að fá viðvörum þegar hann þurfti að fara á klósettið oft á nóttunni. En hann kenndi aldrinum um þetta. Sú var þó ekki raunin heldur var hann með krabbamein í blöðrunni.
Tónlistarmaðurinn Helgi Pétursson er sessunautur Tolla í þættinum og er jafn ófeiminn og hann að lýsa reynslu sinni af viðureign við krabbamein.
Meira um málið í þættinum á Hringbraut sem eins og aðrir þættir Hringbrautar er geymdur á vef stöðvarinnar.