Fólk sem glímir við kvíða og félagsfælni á það miklu fremur til að kaupa í matinn í myrkri en dagsbirtu. Þetta kom fram í þættinum ,,Fólk með Sirrý" á Hringbraut á þriðjudagskvöld, en þátturinn fjallaði um geðraskanir.
Eymundur Eymundsson sagði frá því hvernig hann glímdi við félagsfælni og kvíða áratugum saman og fór á mis við það sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann fór ekki út í búð til að kaupa í matinn fyrr en í myrkri á kvöldin til að forðast það að hitta fólk. Hann gekk meðfram veggjum, reyndi að aka á fáförnum stöðum til að sjá sem fæst fólk, fór ekki í fjölskylduboð eða í framhaldsnám því honum leið illa innan um fólk. Í dag kemur hann opinberlega fram og flytur fyrirlestra um leiðina út úr myrkrinu og hvernig hann komst út úr sínum geðræna vanda.
Hægt er að sjá þáttinn og heyra ráðin sem Eymundur og fleiri gefa í þættinum hér.