Síðasti þáttur Vitjanna var sýndur á Rúv í gærkvöldi og ef marka má athugasemdir við færslu RÚV á Facebook voru áhorfendur almennt mjög ánægðir með þá, fyrir utan hljóðið.
„Maður á ekki að þurfa að lesa texta til að halda þræði á íslensku efni,“ skrifar einn áhorfandi í athugasemd við færsluna. Fleiri tóku undir og hefðu viljað heyra talið betur.
„Því miður er það svo hjá okkur sem erum með skerta heyrn að öll samtöl þar sem músik er undir missum við af. Væri gott að hafa textað fyrir okkar að geta lesið,“ segir annar áhorfandi.
Var hljóðið nánast það eina sem áhorfendur höfðu út á að setja og voru það einkum samtöl persónanna sem áhorfendur ekki heyrðu.
Þættirnir fjalla um Þættirnir fjalla um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Um fjölskyldudrama er að ræða en einnig er snert á viðkvæmum og erfiðum málefnum eins og geðrænum vanda.
Þættirnir eru í leikstjórn Evu Sigurðardóttur og með aðallhlutverk fara Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson.
Áhorfendur sem rituðu athugasemdir við færslu RÚV í gær voru einkum ánægðir með leikinn í þáttunum, bæði Söru og Helgu,
„Með því betra sem ég hef séð í íslensku sjónvarpi og þó víða væri leitað,“ segir í einni athugasemd og í annarri segir: „Flottir þættir og gott málefni. Vel leikin,valin maður í hverju hlutverki.“