Fólk kemst leiðar sinnar þrátt fyrir lokanir í dag

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu áréttar að þrátt fyrir lokanir gatna vegna heimsóknar Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, til landsins muni fólk komast leiðar sinnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Margir hafa haft samband við lögreglu og lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessa.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hjá einhverjum einstaklingum gæti það tekið lengri tíma en venjulega að komast leiðar sinnar og að ennfremur kunni sumir að þurfa að leggja lengra frá vinnustaðnum sínum en þeir gera venjulega.

Í gær var greint frá lokun Sæbrautar, á milli Snorrabrautar og Kringlumýrarbrautar, frá því um hádegisbil í dag og þar til síðdegis. Sömuleiðis verður lokað fyrir umferð um hluta Borgartúns. Sama gildir um umferð í Katrínartúni, á milli Borgartúns og Sæbrautar, og því er ekki hægt að aka frá Guðrúnartúni inn á Katrínartún.

Í dag verður lokað fyrir umferð í Borgartúni frá Þórunnartúni að Nóatúni, en auk þessa má búast við tímabundnum umferðartöfum annars staðar í umdæminu.