Fólk hugsar bara „oh my god“

„Fólk hugsar bara Oh My God!“,segir Eiður Atli Axelsson 14 ára í frábæru viðtali á nýjustu Þjóðbraut en á íslensku nefnist hans fötlun Heilalömun sem hann skilur ekki hvaða málfarssnillingar fundu upp. Eiður lýsir því á einstakan og húmorískan hátt hvernig það er að vera fatlaður í almennum grunnskóla en auk þess hefur Eiður mjög sterkar pólitískar skoðanir og elskar eiginlega bara lífið og annað fólk þrátt fyrir hina og þessa erfiðleika í skólanum.

Eiður er með CP, eða Cerebral Palsy, sem er hreyfihömlun en hefur líka greinst á einhverfurófi.  Í skólanum lenti hann í einelti en það hefur lagast segir hann og finnst frábært að vera með krökkunum núna. „Við höfum öll þroskast“, segir Eiður um sig og krakkana en eineltið var verst þegar hann hóf skólagönguna en þá reyndi hann eftir megni, sex ára að útskýra fyrir krökkunum hvað amaði að hinum með litlum árangri.

Þátturinn er endursýndur um helgina, en einnig sjáanlegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.