Fólk hamstraði með æðisglampa í augum

Jón Agnar Ólason, ritstjóri sérblaða Morgunblaðsins fór hreinlega á kostum í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld þar sem hann lýsti reynslu sinni af innkaupaferð í Krónuna í aðdraganda ofsaveðursins síðdegis á mánudag.

Sjá má brotið úr viðtalinu inni á hringbraut.is og þáttinn allan hér á vefnum, en Jón Agnar leit sumsé við í Krónunni þennan daginn til að kaupa nokkrar mandarínur til að halda við jólaskammtinum í skálinni heima hjá familíunni í Hafnarfirði, en þá sér hann einhvern æðisglampa í augum fólks allt í kringum sig sem margt hvert var komið með 10 tveggja lítra mjólkurfernur í innkaupakerruna ásamt stæðum af niðurskornum brauðhleifum - og einmitt þarna áttaði hann sig á því að enda þótt ennþá væri logn úti litu margir svo á að þeir ættu varla afturkvæmt úr ofsaveðrinu sem hafði verið spáð, réttast væri að minnsta kosti að birgja sig upp til margra daga inniveru svo einhver möguleiki væri á lífi eftir fárviðrið.

Aldrei fyrr hafi hann séð jafn rafmagnað andrúmsloft í nokkurri matvörubúð sem hann hefur komið í um sína daga.

Ritstjórarnir eru á dagskrá Hringbrautar öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.