Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur beint þeim tilmælum til íbúa að halda sig innandyra og vera hlémegin í húsum sínum. Nota skal 112 ef aðstoðar er krafist.
Mjög slæmt ástand er í Eyjum. 10 björgunarsveitarmenn liggja nú ofan á þaki sem fauk til að það fari ekki af stað og valdi tjóni. Mörg hús hafa orðið fyrir þakskemmdum og búið er að rýma nokkur hús.
Landsbjörg hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem kemur fram að ekki sé talið öruggt fyrir björgunarsveitarmenn að fara að einu húsinu.
Búið er að lýsa yfir hættuástandi í Eyjum en mjög slæmt veður er einnig að skapast í Árnessýslu þar sem snjókoma fyrir austan ofsaveðrinu. Þá hrynur rafmagn af landsvæðum eins og spilaborgir.
Þakplötur hafa fokið á Hvolsvelli og segir yfirlögregluþjónn í samtali við visir.is að hann hafi aldrei orðið vitni að öðru eins veðri.