Sóttvarnalæknir ákvað í gær að breyta reglum um einangrun fyrir þá sem eru smitaðir af Covid en eru bólusettir og hraustir. Fólk sem uppfyllir þessi skilyrði og hefur verið einkennalaust í allavega þrjá daga þarf nú aðeins að vera í einangrun í 10 daga í stað 14 eins og venjan hefur verið.
Í kjölfar þessara fregna hefur síminn vart stoppað á Covid-göngudeildinni svo starfsmenn urðu að biðja fólk að bíða rólegt því þeir sem eiga að losna fyrr fá símtal um það frá lækni.
Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður farsóttahúsa, segist í samtali við Vísi hafa fundið fyrir mikilli forvitni meðal gesta um nýju reglurnar, sérstaklega erlendra ferðamanna í einangrun, sem vilja komast aftur til sinna heimalanda.
„En það er náttúrulega bara með þau eins og aðra að það er læknir eða Covid-deildin sem metur hvert tilfelli fyrir sig,“ segir Gylfi.
„En svo er það náttúrulega þannig að við verðum bara að treysta því að fólk sé ekki eftir þessa breytingu að ljúga til um heilsu sína, sem að gæti verið freistandi fyrir einhverja, en þeir væru þá um leið að setja sjálfa sig og nærumhverfi sitt í aukna hættu og það viljum við auðvitað alls ekki,“ segir hann.
Gylfi segist ekki hafa miklar áhyggjur af því að fólk fari að ljúga til um heilsu sína en segir það viðbúið að einhverjir muni reyna það.
Í dag greindust 145 manns með kórónaveiruna innanlands sem er hæsti fjöldi frá upphafi. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, býst við því að jákvæðum smitum muni fjölga enn meira eftir verslunarmannahelgi.
Í samtali við RÚV segir hún að smitrakningarteymið hafi vart undan við að rekja smit og hringja í útsetta, og biðlar til fólks að fara í sjálfskipaða sóttkví, telji að sig hafa verið útsett fyrir smiti.
„Ekki bíða eftir að fá símtal frá rakningarteyminu ef þú umgekkst náið einhvern smitaðan,“ segir Hjördís.
Sóttvarnaryfirvöld óttast að um miðja næstu viku gætum við séð fram á nýjan metfjölda smita, auk þess sem álag á heilbrigðiskerfið gæti aukist verulega, því þeir sem fá alvarleg einkenni verða oftast veikir um tíu dögum eftir smit.