Fólk flýr höfuðborgarsvæðið

Mikil brögð eru að því að fólk flýi höfuðborgarsvæðið vegna hás húsnæðiskostnaðar.

Frá þessu greinir Stundin í viðamikilli úttekt.

Samkvæmt Stundinni leitar fólk í æ ríkari mæli út fyrir helstu þéttbýliskjarna vegna hárrar leigu á höfuðborgarsvæðinu og jafnvel á Akureyri.

„Það er stóraukning í sölu fasteigna í Ólafs­firði á þessu ári,“ segir Björn í samtali við Stundina. Söluaukning er að hans sögn hátt í hundrað prósent á þessu ári en kaupa má góð einbýlishús á 25 milljónir í Ólafafirði.

Þá er haft eftir fólki sem Stundin ræðir við að það margborgi sig að kaupa húsnæði í Hvergagerði og aka til Reykjavíkur fremur en að leigja húsnæði í höfuðborginni.