Á milli 300 og 400 manns urðu að yfirgefa heimili sín tímabundið á Selfossi í gærkvöld vegna gríðarlegs reyks frá eldsvoða í plastverksmiðjunni Set við Eyrarveg í bænum. Talið er fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða.
Mikinn svartan reyk lagði upp frá ruslagámi við hlið verksmiðjunnar eftir að sást til ferða nokkurra drengja við umræddan gám snemma kvölds og náði eldurinn fljótt að læsa sig í lagerefni í grenndinni - og var þá raunar ekki að sökum að spyrja; mikið magn af plaströrum varð eldinum að bráð á skömmum tíma með tilheyrandi svartakófi yfir bænum.
Komið var upp neyðarstöð í bænum strax og ljóst var í hvert stefndi og þurftu 20 manns að leita þangað vegna gruns um reykeitrun, þar af var einn sendur til Reykjavíkur til frekari rannsókna og aðhlynningar.
Mikil, viðbúnaður var á staðnum í gærkvöld og var meðal annars leitað til Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðisins sem kom stuttu síðar á vettvang, en mikil hætta var talin á að eldurinn næði til nærliggjandi húsa.
Ljóst er að tjónið af völdum eldsvoðans nemur tugmilljónum króna, bæði á verksmiðjunni og vegna reykskemmda í nærliggjandi húsum.
Lögreglan hefur þegar haft tal af drengjum sem hún telur að hafi orsakað brunann, en frekari yfirheyrslur yfir þeim í fylgd foreldra og barnaverndaryfirvalda fara fram í dag.