Íslendingadagurinn í bænum Mountain í Norður-Dakóta Í Bandaríkjunum fer nú fram í 120. skipti. Að honum standa afkomendur Vesturfara sem héldu frá Íslandi til Norður Ameríku á árunum 1875-1914. Talið er að milli 15.000-20.000 Íslendingar hafi flust búferlum og hafið nýtt líf í Vesturheimi, þar á meðan í Norður-Dakóta.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þar er greint frá því að Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sæki hátíðina í ár en hefð er fyrir því að fulltrúi íslenskra stjórnvalda sæki Íslendingahátíðarnar í Mountain og Gimli í Manitoba sem báðar fara fram um helgina. Ráðherra flutti ávarp af því tilefni og tók þátt í skrúðgöngu.
Í ávarpi sínu færði ráðherra færði Vestur Íslendingum kærar kveðjur frá íslensku þjóðinni og lagði meðal annars áherslu á mikilvægi samskiptanna. Vísaði ráðherra þar einkum til Snorraverkefnisins sem er meðal annars ætlað ungmennum af íslenskum uppruna Í Norður-Ameríku til þess að koma til Íslands og kynnast uppruna sínum. Yfir 500 ungmenni frá Vesturheimi hafa komið til Íslands í gegnum verkefnið þar á meðal frá Mountain.
Ráðherra heimsótti einnig Víkurkirkju í Mountain en kirkjan var byggð árið 1884 og er fyrsta íslenska kirkjan sem reist var í Bandaríkjunum. Árið 2013 var hún sett á lista bandaríska innanríkisráðuneytisins yfir staði með sögulega þýðingu. Þá heimsótti ráðherra einnig minnisvarða um ljóðskáldin og Vesturfaranna Stephan G. Stephanssson og Kristján Níels Jónssonar eða Káinn. Lilja sagði:
„Sú arfleið sem afkomendur Vestur Íslendinga halda á lofti hér í Norður-Dakóta er virkilega mikilvæg. Fólkið hér leggur mikið á sig til þess að rækta tengsl sín við Ísland og halda sögu okkar og menningu á lofti. Hér á svæðinu fyrirfinnast ennþá afkomendur Íslendinga sem tala íslensku án þess að hafa búið á Íslandi. Þrátt fyrir að rúm 100 ár séu liðin frá því að búferlafluttningar Vesturfaranna liðu undir lok er fólk enn mjög meðvitað um uppruna sinn og er stolt af honum.“