Fólk beðið að halda sig innandyra á höfuðborgarsvæðinu

Við vekjum athygli á því að appelsínugul viðvörun er nú í gildi á höfuðborgarsvæðinu, en allt bendir til þess að veðurspár muni ganga eftir. Jafnvel er talið að vindurinn verði heldur meiri en búist var við, en reikna má með að veðrið á höfuðborgarsvæðinu verði verst frá kl. 17 og fram til 21 eða 22 í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir enn fremur:

„Fólk er beðið um að halda sig innandyra og vera alls ekki á ferðinni nema að mjög brýna nauðsyn beri til. Vonandi hafa allir náð að koma lausamunum í skjól í sínu nánasta umhverfi enda mikil hætta á foktjóni í þessu veðri. Meðfylgjandi mynd var tekin í Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð, en þar má sjá hluta af okkar fólki sem stendur vaktina í dag.“