Fólk andlega uppgefið á siglufirði

Aðalheiður Eysteinsdóttir, listamaður frá Siglufirði segir að vegna vatnsflóðanna í bænum á föstudag hafi niðurföll ekki enn undan í bænum, en nú er háflæði á staðnum og ekki megi rigna mikið svo út af flói í tiltekn um bæjarhlutum.

Sjálf barðist hún við mikið vatn í Alþýðuhúsinu þegar flóðin skullu á bænum, en með aðstoð erlends vinar hennar tókst þeim að bjarga því sem bjargað varð með skóflum og fötum. Þau hafi haldið að sigri hefði verið náð á föstudagsmorgun, en skömmu síðar hafi svo bærinn flotið allur í auri og hafi heimafólk vart séð annað eins, enda varð gríðarlegt tjón í flóðunum á Tröllaskaga.

Aðalheiður var í viðtali við Samfélagið á Rás 1 í dag og sagði þar eigin sögu og annarra íbúa. Henni tókst að bjarga eigin listaverkum í Alþýðuhúsinu en gat þess að nágranni hennar, eldri kona sitji uppi með nánast ónýta íbúð eftir að hún fylltist af leirdrullu. Bæði séu skemmdir svakalegar en einnig sé hinn sálræni mótbyr sem fylgi eyðileggingunni mörgum erfiður. Dæmi séu um að fólk sé hreinlega uppgefið andlega þótt mikill samhugur íbúa sé einnig fyrir hendi.