„Ég held að fólk ætti bara að halda sig við sína reglulegubundnu bólfélaga," var svar Þórlófs Guðnasonar sóttvarnalæknis við spurningu frá Birni Inga Hrafnssyni, blaðamanni Viljans, á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Björn benti á að Danir hefðu hvatt landsmenn til að stunda heimaleikfimi til að stytta sér stundir og að Hollendingar hafa hvatt landsmenn til að finna sér tiltekinn bólfélaga á meðan það versta gengur yfir.
Þórólfur og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn voru þá spurður hvort að svipuðum aðgerðum yrði beitt hér á landi og hvort þeir ráðlegðu landsmönnum að halda sig við einn bólfélaga.
Þórólfur er frekar á því að landsmenn eigi að halda sig við sína reglubundnu bólfélaga um þessar mundir, frekar en að flakka á milli. Hann sagði einnig að Íslendingar hafa verið heppnir, hér hefur ekki þurft að loka fólk inni og hér hefur fólk getað stundað sína leikfimi úti í guðs grænni náttúrunni.“
Víðir sagðist hins vegar ekki hafa neina skoðun á þessu máli.