Fólk að verða afhuga stóreignum

Verulegra breytinga sér stað á fasteignamarkaði í þá veru að minni íbúðir rjúka upp í verði á meðan æ erfiðara er að selja stærstu eignirnar sem telja yfir 250 fermetra að flatarmáli.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem fram kemur að fermetraverð minni íbúða sé orðið 50% hærra en stærra húsnæðis; tölur Þjóðskrár Íslands sýni að á undanförnum árum hafi fermetraverð eigna yfir 210 fermetrum farið úr 230 þúsundum króna í 255 þúsund, en fermetraverð íbúða undir 70 fermetrum farið úr 250 þúsund í 385 þúsund krónur.

Í blaðinu kemur fram að samkvæmt nýrri könnun hefur ekki einungis ungt fólk heldur einnig eldra og tækjuhærra fólk áhuga á að búa í litlum íbúðum.

Jón Guðmundsson, annar eiganda Fasteignamarkaðarins segist hafa fundið fyrir minni eftirspurn eftir stærri fasteignum að undaförnu, en staðsetning minni íbúðanna skýri að hluta til verðmuninn: Vegna aukinnar eftirspurnar og lítils framboðs af minni eignum þá hefur fermetraverð þeirra hækkað verulega,\" segir hann í Fréttablaðinu í morgun.