Fólk á vanskilaskrá geti fengið lán

Ráðamenn á húnsæðismarkaði hér á landi beina nú sjónum sínum einkanlega fólki á leigumarkaði og þeim sem teljast til lægri tekjuhópa, en mikill fjöldi fólks á nú í erfiðleikum með að verða sér úti um húsnæði á Íslandi.

Þetta er meðal þess sem kom fram í viðtali við Eygló Harðardóttur velferðaráðherra, í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má nálgast í heild sinni eða hluta á hringbraut.is. Eygló segir þar að með þaki á leiguverði, sé markmiðið meðal annars að búa til svigrúm fyrir fólk að leggja fyrir það eigið fé sem til þarf fyrir útborgun á eign. Þá komi til greina að nýta séreignarsparnaðarúrræðið betur fyrir fasteignakaup, til dæmis með því að lengja í þeim tíma sem nú gildir, en í dag má aðeins taka út séreignarsparnað til fasteignakaupa miðað við tímabilið 2014-2017.

Eygló segir einnig að greiðslumat lántakenda muni breytast þó nokkuð með nýju frumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi í haust. Þar er lagt til að greiðslusaga lántakenda hafi meira vægi, sem þýði að jafnvel þeir sem eru á vanskilaskrá, gætu fengið lán hjá bönkum, geti þeir sýnt fram á að þeir séu skilvísir greiðendur og hafi, þrátt fyrir áhrif hruns, náð sér vel á strik á ný.

Í þættinum vitnar Eygló í rannsóknir sem gerð var á stöðu þeirra sem misstu eignir sínar á nauðungaruppboðum eftir hrun en niðurstöður sýndu að 80% þeirra, búa enn í leiguhúsnæði. Í þætti kvöldsins er einnig rætt við Yngva Örn Kristinsson, hagfræðing hjá Samtökum fjármálafyrirtækja. Yngvi Örn segir meðal annars að með nýjum lögum um fasteignalán, myndist sá sveigjanleiki að fólk gæti hugsanlega fengið fasteignalán, þótt greiðslumat reynist neikvætt.