Sífellt fleiri tilkynningar um fok berast nú af höfuðborgarsvæðinu eftir því sem ofsaveðrið gengur yfir landið og hefur Neyðarlínu meðal annars verið tilkynnt um blaðagáma og skúr á ferð, skjólveggi sem hafa gefið sig og brotnar rúður, meðal annars á Völlunum í Hafnarfirði.
Á Norðurlandi er einnig mjög erfitt ástand en í Skagafirði er nú mikil veðurhæð að því er segir á fréttavef mbl.is: \"Það verður ansi slæmt ástand í Skagafirði eftir því sem líður á kvöldið og vestantil á Tröllaskaga er mjög hvasst í fjallahæð. Nú þegar er vonskuveður komið í Blönduhlíð,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is en hún er nú stödd í samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð í Reykjavík.
\"Veðrið á þessu svæði á svo eftir að versna enn frekar því það nær ekki hámarki fyrr en á miðnætti. En það mun hins vegar draga úr þessu hér sunnantil eftir klukkan 10,“ segir hún við vefinn.
Vindhraði á Hólmsheiði mælist nú stöðugur 28 m/s og segir Elín Björk sama ástand á Völlunum í Hafnarfirði og Norðlingaholti svo dæmi séu tekin: \"Það er ofsaveður samkvæmt skilgreiningu.“
Þá var rétt í þessu að að berast beiðni um aðstoð vegna þakglugga sem virðast vera að gefa sig á tíu hæða blokk að Veghúsum í Grafarvogi. Einnig eru neyðarútgangar opnir vegna mikils vinds í húsnæði Norðlingaskóla, þakplötur að losna af þaki Sjálandsskóla í Garðabæ og klæðningar að losna í Vatnsendaskóla.
Þá eru bátar farnir að losna í Reykjavíkurhöfn. Veður á enn eftir að versna í höfuðborginni.
Ástandið er hins vegar langverst í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. „Þar höfum við verið að tapa vindmælum,“ segir Elín Björk og bætir við að veðurspár Veðurstofu Íslands séu allar að ganga eftir.
Búist er við miklum vatnselg í höfuðborginni í fyrramálið, segir í téðri frétt á mbl.is.