Fme snuprar frjálsa lífeyrissjóðinn

Fjármálaeftirlitið hóf athugun á ferli fjárfestingar Frjálsa lífeyrissjóðsins í Sameinuðu sílikoni hf. síðastliðið haust, en lífeyrissjóðurinn útvistar starfsemi sinni að öllu leyti til Arion banka hf. Ítarleg upplýsinga- og gagnaöflun fór fram af hálfu stofnunarinnar í því skyni að varpa ljósi á fjárfestingarferlið og þær ákvarðanir sem sjóðurinn tók í tengslum við fjárfestingu í félaginu. Niðurstaða athugunarinnar lá fyrir í mars 2018.

Með hliðsjón af hinu sérstaka rekstrarfyrirkomulagi lífeyrissjóðsins og hagsmunatengslum rekstraraðila lífeyrissjóðsins við umrædda fjárfestingu var niðurstaða athugunarinnar sú að lífeyrissjóðurinn hefði ekki horft nægilega gagnrýnum augum á þau hagsmunatengsl sem voru til staðar við fjárfestingu í Sameinuðu sílikoni og af þeim sökum ekki tekið fullnægjandi tillit til þeirrar orðsporsáhættu sem lífeyrissjóðurinn stóð frammi fyrir vegna þessa. Þá taldi stofnunin að skjalfesting á forsendum og umræðum í tengslum við ákvörðun stjórnar hefði verið ófullnægjandi í ljósi þess að lífeyrissjóðurinn og rekstraraðili hans voru báðir hagsmunaaðilar að verkefninu.


Með hliðsjón af framangreindu var það mat Fjármálaeftirlitsins að fjárfestingarferli lífeyrissjóðsins hafi ekki verið eðlilegt og heilbrigt, sbr. 4. mgr. 44. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 1. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið fór fram á að ritun fundargerða lífeyrissjóðsins verði framvegis með þeim hætti að hægt sé að sýna fram á að sjónarmið og hagsmunir lífeyrissjóðsins hafi verið í fyrirrúmi við ákvörðunartöku.


Þá fór Fjármálaeftirlitið fram á að lífeyrissjóðurinn gripi til ráðstafana til að lágmarka orðsporsáhættu vegna hagsmunatengsla sjóðsins og rekstraraðila og endurskoðaði verklag sitt, svo sem með stefnu um hvenær óskað er eftir utanaðkomandi greiningum á fýsileika og áhættu fjárfestinga og hvernig fjárfestingarferli lífeyrissjóðsins skuli háttað þegar rekstraraðili eða aðilar honum tengdir eru einnig haghafar að verkefnum.

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins skipa Ásgeir Thoroddsen lögmaður, Anna Sigríður Halldórsdóttir, Ásdís Eva Hannesdóttir, Elías Jónatansson, Elín Þórðardóttir, Jón G. Kristjánsson og Magnús Pálmi Skúlason. Meðal varamanna er Tryggvi Þór Herbertsson fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks.


Fjármálaeftirlitið fór fram á að lífeyrissjóðurinn geri stofnuninni grein fyrir þeim aðgerðum sem sjóðurinn hefur og/eða hyggst grípa til til þess að bæta verklag við fjárfestingarákvarðanir í samræmi við sjónarmið stofnunarinnar.