Fyrstu sex mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir rúma 332,4 milljarða króna en inn fyrir tæpa 338,4 milljarða króna samkvæmt nýju yfirliti Hagstofunnar um vöruviðskipti landsmanna.
Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 5,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 9,8 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 3,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,2 milljarða króna og inn fyrir 66,4 milljarða króna. Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,2 milljarða króna. Í júní 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,0 milljarða króna á gengi hvors árs.
Fyrstu sex mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 61,3 milljörðum eða 22,6% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,2% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.
Fyrstu sex mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 57,5 milljörðum eða 20,5% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.