Flytjum inn þúsundir tonna af hráu kjöti árlega

 „Við flytjum inn mörg þúsund tonn af hráu kjöti árlega, nefnilega frosnu hráu kjöti,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag. Hún vísaði þar til frumvarps Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem kveður á um að leyfa innflutning á fersku ófrystu kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk. Viljinn greinir frá.

Áslaug Arna benti í máli sínu á að aldrei hafi reynt á innköllun kjöts vegna hættu á smiti sem flutt hafi verið inn undir 30 daga frystiskyldu. „Allt tal um að þetta sé því í fyrsta sinn sem við leyfum hrátt kjöt og að hætta stafi af er, er algjör markleysa. Munurinn er einungis hvort hrátt kjöt er flutt inn ferskt eða frosið. Við skulum muna að frysting drepur ekki sýklalyfjaónæmar bakteríur. Í reynd eru meiri líkur á að þær berist með mannfólki en landbúnaðarafurðum. Þá mun innflutningur líka mæta sömu kröfum og innlend framleiðsla.“

Áslaug Arna sagði að dómur EFTA vegna málsins væri fallinn og að sömuleiðis væri dómur fallinn bæði fyrir héraðsdómi og hæstarétti. Þessir dómar komust allir að þeirri niðurstöðu að Ísland bryti í bága við skyldur sínar samkvæmt EES samningnum. Því þyrftu stjórnvöld að bregðast við. „Það væri fyrst og fremst ábyrgðarleysi að bregðast ekki við. Frumvarp landbúnaðarráðherra setur lýðheilsu og búfjárstofna í forgang og þeir sem til þekkja, faglegir aðilar, segja mótvægisaðgerðir ráðherrans sterkar.“

Hún sagðist treysta íslenskum landbúnaði fyllilega en sagðist einnig treysta íslenskum neytendum til að velja á milli íslenskra og erlendra afurða. Auk þess sagði hún það alls ekki á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar að segja upp EES samningnum, sem hefur verið velt upp af andstæðingum frumvarpsins sem möguleika fyrir stjórnvöld að grípa til.