Einstaklingur var fluttur heim með sjúkraflugi úr árshátíðarferð Samherja vegna beinbrots eftir óhapps. Ákveðið var að kalla til sjúkraflug til að koma manninum undir læknishendur á Íslandi sem fyrst.
Karl Eskil Pálsson, upplýsingafulltrúi Samherja, staðfesti þetta í samtali við Rúv í dag.
Þar kemur fram að maðurinn hafi fengið slæmt beinbrot eftir óhapp á föstudaginn og var hann kominn undir læknishendur á Akureyri degi síðar. Atvikið hafi ekki átt sér stað á árshátíðinni sem fór í Gdansk í Póllandi.
„Hann verður fyrir óhappi og brotnar illa og samkvæmt starfsreglum fyrirtækisins fer í gang ákveðið ferli. Það var ljóst að hann hefði þurft að dvelja lengi á sjúkrahúsi þarna úti og því var ákveðið að senda sjúkraflugvél eftir honum,“ segir Karl Eskill í samtali við Rúv.
Þar kemur fram að flugvél af tegundinni B200 King Air hafi sótt umræddan einstakling og að flugið heim hafi verið um sex klukkutímar enda eitt lengsta sjúkraflug frá Akureyri í sögu fyrirtækisins Nordlandair.