Rafmagns- og sambandsleysisleysis í óveðrinu í liðinni viku hefur valdið tjóni og óvissuástandi, sér í lagi á norðurlandi og enn sér ekki fyrir endan á viðgerðum og björgun.
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik mætti til Lindu Blöndal í þættinum 21 í gærkvöld.
Vara-aflstöðvar voru ekki á þeim stöðum sem þurfti. Til dæmis á Hvammstanga þar sem Heilbrigðisstofnunin var án allra tengina og rafmagns, og svo í Ólafsvík og víðar.
Um Hvammstanga segir Tryggvi Þór: „Byggðalínan í Hrútartungu er með tengingar úr tveimur áttum. Síðan erum við með tvöfalda tengingu inn á Hvammstanga og við eigum möguleika á þriðju tengingunni. Þegar að þetta var komið á þá töldum við að það væri betra að vera með þessar varavélar annars staðar. Og við fluttum varavélin sem var á Hvammstanga til Víkur. Því þar erum við með kerfi sem er bara með afhendingu á einum stað“, Tryggvi.
En voru það ekki mistök miðað við hvað við erum að horfa upp á núna?
„Við erum búnir að vera með truflanir á Vík bara á síðasta ári og meira að segja flutt fleiri vélar til Víkur vegna þess“.
En er hægt að segja að þið hafið verið nægilega undirbúnir?
„Nei, það er ekki hægt að segja það“.