Flutti lögheimilið aftur heim

Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir kveðst í samtali við Hringbraut vera búinn að flytja lögheimili sitt aftur heim til Íslands. Hann var með heimilisfesti í Sviss um nokkurt skeið og segir að þótt skattalegt hagræði af því hafi verið umtalsvert fyrir sig hafi hann smám saman komist að því að hagsmunum hans sem fjárfestis hafi verið betur fyrir komið hér á landi. Hann hafi meiri ábata af því að fylgjast með fjárfestingum sínum í návíginu heima á Íslandi, en dvelja fjarri þeim stóran hluta úr ári vegna minni skattgreiðslna.


Tugir íslenskra fjárfesta og auðmanna hafa flutt lögheimili sitt til útlanda á síðustu árum vegna skattalegs hagræðis, líklega um 50 talsins. Þannig munu um tíu þeirra hafa heimilisfesti á Kýpur, svo dæmi sé tekið, en þar er skattur á auðmenn um helmingi lægri en hér á landi. Þessir fjárfestar mega einungis dvelja í takmarkaðan tíma hér á landi, eða í 170 daga, vegna þess að þeir borga ekki lengur skatta og skyldur á Íslandi. Engu að síður njóta þeir og fjölskyldur þeirra margvíslegra réttinda í heimalandinu, án þess að leggja nokkuð til samfélagsins. Á þetta hefur verið margsinnis deilt innan Alþingis.


Hringbraut.is mun á næstunni freista þess að fá lista yfir þá auðmenn og fjárfesta sem hafa flutt lögheimili sitt til útlanda á síðustu árum og misserum í því augnamiði að lækka skattgreiðslur sínar.