Flutti að heiman vegna myglusvepps

Fyrsti viðmælandi þáttarins Ég bara spyr sem hóf göngu sína á Hringbraut í gærkvöld klukkan 20.30, heitir Harpa Karen og er aðeins 14 ára gömul. Í þættinum lýsti hún þeim veikindum sem hún gekk í gegnum af völdum myglusvepps í heimahúsi.

Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni á hringbraut.is, svo og klippur úr honum.  

Veikindi stúlkunnar ágerðust svo mjög, eins og vel kemur fram í þætti kvöldsins, að hún þurfti að flytja að heiman um nokkurra mánaða skeið. Harpa Karen sagði einkennin hafa verið af ýmsum toga og enn í dag er það þannig að ef hún fer inn í hús þar sem mygla er til staðar, þá finnur hún strax til einkenna.

Umsjónarmaður þáttarins Ég bara spyr er Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar, en hún annast einnig umsjón fasteignaþáttarins Afsals sem verið hefur á dagskrá Hringbrautar í sumar.

Rakel segir nýju þættina vera spennandi verkefni að vinna að því þátturinn sé í rauninni gagnvirkur: \"Hringbraut og Spyr eru með þessum þáttum að búa til gagnvirkan sjónvarpsþátt þar sem áhorfendur stýra dagskrárgerð. Þannig eru áhorfendur hvattir til að senda inn málefnalegar fyrirspurnir til Spyr.is, þar er kallað eftir svörum og síðan velur þátturinn úr svörum í hverri viku. Þessi svör eru síðan rædd betur í þáttunum Ég bara spyr en myglusveppurinn er eitt þeirra málefna sem fólk hefur mikið spurt um.

Í þættinum var einnig rætt við Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur, líffræðing. Sylgja Dögg segir fólk geta gert ýmislegt til að koma í veg fyrir myglusvepp heima fyrir, en gróska hans er ekkert meira bundinn við gömul hús en ný. Raki er fyrst og fremst það sem passa þarf uppá en í öllum tilvikum eru engar skyndilausnir til þegar bregðast þarf við myglusvepp sem farinn er að valda veikindum. 

Þáttinn og klippur úr þætti kvöldsins er að finna hér: