Viðræður sem innanríkisráðherra vill að hefjist meðal hagsmunaaðila eiga að byggja á því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni um lengri tíma en til ársins 2022. Einnig að staðsetning vallarins verði óbreytt, svo lengi sem ekki liggi fyrir skýrt samkomulag við yfirvöld samgöngumála um annað sem samræmist vilja Alþingis.
Innanríkisráðherra hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að ríki og Reykjavíkurborg hefji hið fyrsta formlegar viðræður um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Viðræðurnar eiga að vera í samráði við önnur sveitarfélög og hagsmunaaðila.
Leggja á áherslu á fjölþætta og mikilvæga almannahagsmuni sem tengjast innanlandsflugi og lögbundin markmið á sviði samgöngumála, eins og segir í tilkynningu innanríkisráðuneytisins.