Flugvélin hreinlega datt

Sverrir Páll Erlendsson menntaskólakennari var um borð í flugvélinni sem snúið var við eftir mikla ókyrrð suðvestur af Langjökli í fyrrakvöld. Ókyrrðin varð til þess að flugfreyja tókst á loft. Þegar freyjan kom aftur niður meiddist hún á hné. Reglur munu í gildi um að ef áhafnarmeðlimur slasast er brugðist strax við því og vélinni var snúið aftur til Reykjavíkur eftir um 15 mínútna flug en vélin var á leiðinni til Akureyrar. Ekkert sérstakt bendir til þess samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands að hætta hafi verið á ferðum.

Sverrir Páll segir frá reynslu sinni á fésbók. Kemur þar fram að höggið í ókyrrðinni hafi verið  mikið.

„Vélin bókstaflega datt og vatnið í glösunum lenti á loftinu fyrir ofan okkur. Ekki ýkjur,“ segir menntaskólakennarinn.

 Áætlun riðlaðist vegna óhappsins og urðu farþegar á leið norður að gista í Reykjavík. Þeir fóru svo aftur í loftið klukkan 9 í gærmorgun í lungnamjúku flugi að sögn Sverris Páls sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að flugókyrrð, enda reyndur flugfarþegi í innanlandsflugi.

 Flugfreyjan er aftur mætt til vinnu. Hún marðist illa en en er hvorki tognuð né brotin.