Flugvélasæti hafa líklega minnkað!

Rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson sem skrifar sína bráðskemmtilegu pistla á hringbraut.is veltir því fyrir sér í sínum nýjustu skrifum hvort sætin um borð í farþegavélum hafi ekki örugglega minnkað hin sienni árin.

\"Þegar ég brá mér til Spánar á dögunum,\" skrifar hann \"tók ég eftir því að vélin sem ég þurfti að hólka mér inn í hafði svo þéttskipaðar sætaraðir að ekki var möguleiki á því fyrir fullvaxna karlmenn að sitja þar svo vel færi. Ég lét mig samt hafa það og gerði mig svo rýran um miðjuna að ég efast um að lifrin í mér muni bera þess bætur. Og hafði hún þó komist í gegnum marga raun hér áður og fyrrum.\"

Hann rámar ekki í að hafa fitnað svo nokkru nemi síðustu misserin. Og rifjar svo upp að enn erfiðari hafi heimferðin verið: \" Ég hagræddi þá bæði brisi og öllu mjógirni svo ég mætti smeyja mér inn í mitt sæti. Það hafðist – en vart meira en svo því ég þurfti að fasta alla leiðina heim. Mátti mér svo sem vera sama um það – svona í þessa tæpu fimm tíma – ef ekki hefði verið fyrir manndýrið sem sat skáhallt framan við mig og las National Geographic og lá þar í ólæsi sínu yfir grein (myndskreyttri) um Mahatma Gandhi, í rúma fjóra klukkutíma. Ég var við það – og hefði gert það, hefði ég komist úr sætinu – að slíta blaðið úr lúkunum á honum eða bjóða honum enskukennslu.\" 

Og Guðmundur, þar sem hann sat fastur í vélinni var við það að springa: \"Ekki batnaði skapið í mér þegar ég sá að flugfélagið lagði sérstaka áherslu á að selja fólki, Capri-sígarettur. Ekki það að ég brúki tóbak, en mér fannst þetta ögrun – að sjá þessum mjóslegna fjanda hampað.\"

Hann er ekki frá því að flugvélarnar hér áður fyrr hafi verið rýmri: \"Þegar menn höfðu, í Keflavík, náð mér úr sætinu – undir eftirliti innkirtlasérfræðings – með kraftblökk, þá vatt ég mér sem hraðast út úr þessum aðstæðum og hugsaði um það hve þeir voru nú meira grand, Ingólfur og Guðni, sem ferjuðu spikfeita menn í minni flugvélum um víða veröld á tímum þegar það mátti meira að segja reykja í flugvélum – og ekki bara Capri. Þá gátu farið saman, sólarlandaför og sólarlandamör.\"