Flugvél wow í montreal kyrrsett

Flug­vél WOW air, TF-PRO, sem er stödd í Montreal í Kanada, var kyr­rsett að beiðni leigu­sala vél­ar­inn­ar í gær. Vélin átti að ferja farþega til Íslands í gærkvöldi en farþegum sem áttu far með vél­inni var til­kynnt að vegna „tækni­legra örðug­leika“ yrði flug­inu frestað þar til nú í kvöld. Mbl.is greinir frá.

Í nótt var önnur vél frá WOW air, TF-DOG, send til Montreal svo unnt sé að ferja fólkið til Íslands í kvöld. Samkvæmt Mbl.is er ekki ljóst hvort WOW air tak­ist að losa vél­ina að nýju með greiðslu til Jin Shan 20 Ire­land Comp­any Lim­ited, eiganda vélarinnar.

WOW air er sagt hafa misst nýt­ing­ar­rétt­inn á TF-PRO vegna brota á samn­ingsskil­mál­um og Mbl.is hefur heimildir fyrir því að Jin Shan 20 hafi komið vél­inni í verk­efni ann­ars staðar.