Flugþjónn: farþegar ánægðir með q400

\"Vélin er falleg, hún er aðlaðandi og fer vel með farþega. Gluggarnir eru sem dæmi hærri á skrokknum en á Fokker og líka stærri þannig að farþegar njóta mun betur fegurðar landsins úr lofti inannlands en í F 50,\" segir Hreinn Skagfjörð flugþjónn  sem hefur flogið um langt skeið í innanlandsflugi um umdeilda Q400 vél Flugfélags Íslands.

Eins og Hringbraut hefur fjallað um hafa ýmsir lýst áhyggjum og óþægindum vegna tíðra bilana nýkeyptu vélarinnar sem komin er til ára sinna. Von er á tveimur að auki. Hreinn segir að flugþjónar og starfsmenn FÍ þurfi að svara mörgum spurningum ferðalanga vegna fréttaumræðu síðustu daga. Eitt standi þó upp úr; ánægja þeirra farþega sem hafi flogið með vélinni.

Hreinn segir mikilvægt að kostir þessara breytinga á flugflotanum innanlands séu ræddir ekki síður en gallarnir. Þá hefur Hringbraut verið bent á að það sé ekki eins og að Fokker 50 vélarnar hafi ekki líka bilað reglulega. Farþegar hafi þó síður orðið varir við það vegna þess að þá hafi aukavélar leyst af. Málið sé ögn flóknara nú tímabundið þar sem aðeins ein af þremur vélum sé komin til landsins en Q400 vélarnar taka mun fleiri farþega en Fokker. Hringbraut hefur verið bent á að það hafi ekki verið nein facebook til við upphaf sögu Fokker vélanna vinsælu hér á landi. Viku eftir að fyrsta vélin hafi komið til landsins hafi henni verið lent í Keflavík með nefhjólið uppi.

Farþegi sem ræddi við Hringbraut segist hafa orðið var við að Q400 vélin standi sig betur í ókyrrð en Fokker. Hringbraut hefur einnig rætt við farþega sem segist upplifa mismunun. Nýjar vélar séu keyptar í millilandaflugið en \"landsbyggðarvargurinn situr upp með gamlar vélar\" eins og farþeginn orðar það.

Forstjóri FÍ vísar því alfarið á bug að öryggi flugfarþega sé ábótavant þótt vélin hafi bilað þvisvar og einu sinni verið lent nokkuð harkalega í Keflavík vegna bilunar í vængbörðum.