Flugþjónar hætta að taka við reiðufé

Þeir sem ætla að eiga viðskipti við flugþjóna í flugvélum Icelandair með reiðufé geta það ekki lengur. Framvegis munu flugþjónar aðeins taka við reiðufé.

Þetta kemur fram á vefsíðunni turisti.is.

Skýringin er sögð sú að fáir hafi valið að greiða með peningum. Breytingin er til hagræðis og sparast tími hjá starfsfólki að gefa til baka.

Nýjar tölvur flugþjóna verða notaðar þannig að fagþegar geti borgað með bæði debet- og kreditkortum á einu augabragði.