Flugstjóra flugfélagsins Play var sagt upp störfum í síðasta mánuði en talið er að uppsögnin tengist ásökunum um kynferðisbrot gegn samstarfsaðila.
Það er vísir sem greinir frá þessu en samkvæmt heimildum vísis er flugstjórinn grunaður um kynferðisofbeldi gagnvart flugfreyju.
Brotið á að hafa átt sér stað í stoppi flugáhafnarinnar erlendis. Ekki hefur fengist úr því skorið hvort málið hafi verið tilkynnt til lögreglu eða hvort það er til rannsóknar.
Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play segisat ekkert geta staðfest í málinu þar sem hún gæti ekki tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna hjá flugfélaginu.