Flugslysið: þjóðarsorg í rússlandi

Fánar blakta í hálfa stöng í Rússlandi í dag vegna flugslyssins á Sínaískaga í gærmorgun. Þar létu 224 lífið, flestallir rússneskir ferðamenn sem höfðu verið í fríi í Egyptalandi og voru á leið til Pétursborgar.
 

Í frétt RÚV um slysið í dag segir að ættingjar þeirra sem dóu séu saman komnir á hóteli í grennd við flugvöllinn í Pétursborg. Þar fái þeir áfallahjálp. Margir hafi gefið lífsýni til að hjálpa til við að bera kennsl á lík þeirra sem fórust.

Egypskir björgunarmenn hafa fundið 163 lík á slysstaðnum. Hinna er leitað á fimmtán ferkílómetra svæði. Lík þriggja ára telpu fannst í dag í um átta kílómetra fjarlægð frá flaki flugvélarinnar.

Egypskir, rússneskir og franskir sérfræðingar eru byrjaðir að rannsaka flugrita þotunnar. Þeir njóta aðstoðar starfsmanna Airbus flugvélasmiðjanna í Toulouse, að því er segir í frétt RÚV.