Flugslysið: flakið komið til byggða

Vel gekk að flytja flak sjóflugvélar Arngríms Jóhannssonar niður úr fjall­inu Gíslahnúk við Barkárdal í gær, en hún var flutt í nokkr­um hlut­um með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Að sögn Auðuns Krist­ins­sonar, verk­efna­stjóri aðgerðasviðs Land­helg­is­gæsl­unn­ar, tókst aðgerðin í alla staði vel, en hlutirnir verða nú fluttir með flutningabíl suður á Reykjavíkurflugvöll þar sem þeir verða til rannsóknar í skýli Rann­sókna­nefndar sam­göngu­slysa sem mun líklega taka sér tvö til þrjú ar að kanna til­drög slyss­ins bet­ur.

Um tíu manns voru á jörðu niðri rann­sókn­ar­nefnd­inni, lög­regl­unni og björg­un­ar­sveit­um, auk áhafn­ar þyrlunn­ar í lofti.