Þátturinn Ferðalagið er á dagskrá í kvöld Kl.20 og svo endursýnt.
Framfaraskref í flugöryggi
Isavia hefur undirritað samning við fyrirtækið Aireon um notkun á geimlægum kögunarbúnaði við stýringu flugumferðar í íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Ferðalagið fær Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia til að segja frá þessum búnaði og hvers konar framfarir felst í honum flugfarþegum til bóta sem og öðrum. Með búnaðinum verður hægt að fá nákvæmari upplýsingar um staðsetningu flugvéla í nyrðri hluta íslenska flugstjórnarsvæðisins.
Frumkvöðullinn Hörður
Hörður Hilmarsson innleiddi íþrótta og upplifunarferðir fyrir íslendinga í útlöndum fyrir rétt um 30 árum. Hörður er frumkvöðull á þessu sviði og á þessu ári fagnar hann 20 ára afmæli ÍT-ferðanna sinna sem hefur flutt út þúsundir íþrótta-lista og menningarunnendur. Sigmundur Ernir hitti á Hörð.
Ást á Washington
Guðfinnur Sigurvinsson hefur tekið ástfóstri við Washingtonborg. Guðfinnur sem er upplýsingafulltrúi Vodafone og fyrrverandi fréttamaður á Rúv hefur einnig mikið dálæti á sögum bandaríkjaforseta. Sigmundur Ernir hitti Guffa á kaffihúsi.
Aðalmiðstöð ferðamanna
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík hefur verið opnuð í Ráðhúsinu Reykjavíkur og flyst þar með frá Aðalstrætinu þar sem hún hefur verið í 14 ár. Miðstöðin er sá staður í borginni þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu og margir ákveða í framhaldinu hvernig Íslandsheimsókninni verði best varið. Á síðasta ári fengu 475.000 ferðamenn aðstoð og þjónustu á Upplýsingamiðstöðinni í Aðalstræti. Linda hitti Áshildi Bragadóttur, forstöðumann Höfuðborgarstofu í Ráðhúsinu.