Flugmönnum wow bjóðast þegar störf

Flugmenn hjá WOW air fengu þegar í gær tilboð um störf utan landsteinanna. Þetta staðfestir Vignir Örn Guðnason, formaður Íslenska flugmannafélagsins, ÍFF, sem er stéttarfélag flugmanna WOW.

„Það er náttúrlega fullt af störfum í boði en það er ekkert í boði á Íslandi mér vitandi,“ segir Vignir. Aðspurður segir hann störfin ekki bjóðast á einhverjum sérstökum svæðum. „Heimurinn er smár þegar kemur að flugvélum og flugi.“

Vignir segir ÍFF nú reyna að koma á sambandi við atvinnumiðlanir. „Við erum að reyna að aðstoða og koma böndum á þetta kaos sem búið er að myndast. Við erum að reyna að halda hópinn en það er hver og einn að skoða fyrir sig,“ segir hann.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/flugmonnum-wow-bjodast-thegar-storf/