Möguleg yfirtaka móðurfélags British Airways á lággjaldaflugfélaginu Norwegian gæti dregið úr samkeppni í flugi yfir Atlantshafið og leitt til hærri fargjalda. Fjárfestar og greinendur vænta þess að afkoma Icelandair batni ef Norwegian verður hluti af stærri samstæðu.
Þetta kemur fram í úttekt Markaðarins í Fréttablaðinu í dag, en þar er rætt við sérfræðinga á fjármálamarkaði sem virðast sammála i þessum efnum: \"Ég held að flestir fjárfestar séu sammála því enda hækkuðu hlutabréf helstu keppinauta norska félagsins eftir að tíðindin bárust,“ segir Sveinn Þórarinsson, hlutabréfagreinandi í hagfræðideild Landsbankans í úttektinni: \"Það kæmi í það minnsta á óvart ef IAG keypti félagið og héldi sömu stefnu til streitu að öllu leyti.“ Norwegian hafi verið „mjög erfiður keppinautur“.
Elvar Ingi Möller, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka, segir að margir hafi bent á að evrópsk flugfélög þurfi að ganga í gegnum sama tímabil og bandarísk flugfélög hafa gert, þar sem \"samrunar félaga og samþætting hafa leitt til þess að betra jafnvægi hefur náðst með tilliti til verðlagningar og framboðsvaxtar. Það hefur svo leitt til bættrar afkomu. Ef af slíku yrði má leiða að því líkur að þrátt fyrir að vera ekki beinir þátttakendur gætu íslensku flugfélögin notið góðs af, meðal annars í formi hækkunar á meðalfargjöldum,“ segir hann við Markaðinn.