Fyrrverandi flugliði segir í samtali við Stundina að andrúmsloft innan WOW air dagana fyrir og eftir gjaldþrot hafi minnt á sértrúarsöfnuð. Dæmi hafi verið um að flugfreyjur hafi rammað inn búninga sína og starfsfólk sýnt mikla hollustu og óbilandi trú á að tækist að leysa úr þeim fjárhagsvandræðum sem fyrirtækið var komið í. Þá er Flugfreyjufélag Íslands ósátt við Skúla eftir að hann lýsti yfir að ef WOW air yrði endurreist neyddist félagið að ráða erlent vinnuafl til að vera samkeppnishæft.
Flugliðin sem tjáir sig í Stundinni kemur ekki fram undir nafni af ótta við hvaða afleiðingar það kynni að hafa. Flugliðinn segir:
„Fyrir og eftir gjaldþrotið myndaðist einhver gríðarlega óheilbrigð meðvirkni innan félagsins. Ég veit til dæmis um flugfreyjur sem römmuðu búningana sína inn eftir gjaldþrot og hengdu svo upp á vegg heima hjá sér.“
Þá ræddi Stundin við fleiri fyrrverandi starfsmenn. Einn heimildarmaður Stundarinnar segir:
„Tölvupóstarnir sem við fengum rétt fyrir gjaldþrot voru algjörlega firrtir. Inntakið var á einn veg, ekki hafa áhyggjur. Í þokkabót var okkur tjáð að hlusta ekki á fjölmiðla sem greindu frá stöðu mála, þeir væru að mála upp ósanngjarna mynd af fyrirtækinu. Yfirmennirnir létu þetta líta út eins og um samsæri væri að ræða gagnvart fyrirtækinu, og um leið voru þeir að firra sig ábyrgð. Þetta viðhorf endurspeglaðist í því þegar þeir reyndu að komast að því hver læki upplýsingum í fjölmiðla – hver væri að kjafta. Seinna sá maður að fjölmiðlar höfðu greint satt og rétt frá, á meðan yfirmenn reyndu að telja starfsfólkinu trú um annað.“
Þá sagði annar fyrrverandi starfsmaður: „Ég vissi ekki hvernig ég átti að fara að því að ná endum saman eftir gjaldþrotið. Það hafði verið minnst á að WOW myndi ábyrgjast launin okkar en svo varð ekki.“
Svo fór að Flugfreyjufélag Íslands ákvað að brúa bilið og lána starfsfólki fyrir útborgun á grunnlaunum þar til yrði greitt úr ábyrgðarsjóði launa. Grunnlaunin voru þó miklu lægri en fólk vann sér inn yfir hvern mánuð. Haft er eftir fyrrverandi starfsmanni:
„Svo heyrum við að Skúli ætli að setja einhverja milljarða af eigin fé í að stofna nýtt félag með erlendri áhöfn og mér blöskrar. Ég hugsa með mér: Það eru allir á hausnum út af þér, en þú ætlar að splæsa í nýtt flugfélag? Hvernig væri að borga öllu þessu fólki laun sem stóð með þér út í hið óendanlega?“
Skúli var gagnrýndur harðlega af ASÍ eftir að hafa sagt að of dýrt væri að hafa íslenska starfskrafta í vinnu og ráða yrði erlent starfsfólk ætlaði félagið sér að vera samkeppnishæft. Formaður Flugfreyjufélags Íslands, Berglind Einarsdóttir og segir að fyrrverandi starfsmenn hafi mörgum sárnað þessi ummæli.
„Þetta eru ofboðslega kaldar kveðjur til þessara starfsmanna. Hann hefur í gegnum tíðina þakkað starfsmönnum sínum fyrir ótrúlega liðsheild og að hafa lagt sitt af mörkum til þess að fyrirtækinu gangi vel. Þau hafa verið mjög stolt af því að vinna hjá WOW. Fyrstu dagana eftir gjaldþrotið þakkaði hann starfsmönnum en nú kveður við nýjan tón og komið allt annað hljóð í hann og farinn að kenna dýrum starfsmönnum að hluta til um fall WOW air. Þau sem ég hef heyrt í eru ofboðslega sár.“