Flugfreyjur pirraðar vegna klósettferða

 

Einn af kunnari rithöfundum þjóðarinnar gefur starfsfólki Icelandair heldur dapra einkunn vegna of mikillar sölumennsku um borð í vélum félagsins.

„Mér finnst Icelandair fara út á ystu nöf í sölumennsku í flugvélum sínum,“ skrifar Rúnar Helgi Vignisson á eigin fésbók, nýkominn úr flugi.

Hann nefnir dæmi um að sölumennskan geti truflað mjög farþega.

„Á löngum köflum er erfitt að komast á salerni út af söluvögnum og freyjur eiga það til að verða hálfpirraðar þegar maður reynir það,“ skrifar rithöfundurinn, kennarinn og þýðandinn Rúnar Helgi Vignisson.

Hringbraut hefur sent Icelandair fyrirspurn þar sem spurt er hvort breyting hafi orðið á þessum háttum um borð í vélum félagsins.