Flugfreyjur og flugþjónar wow geta fengið lán

Flugfreyjum og flugþjónum WOW air gefst kostur á því að fá lán hjá Flugfreyjufélagi Íslands núna um mánaðamótin, með aðstoð Alþýðusambands Íslands. Upphæð lánsins er 236.000 krónur sé miðað við fullt starf og er ekki skert af sköttum né öðrum greiðslum. FFÍ og ASÍ vonast til þess að geta greitt lánin út síðar í þessari viku.

Þetta kemur fram í tölvupósti til félagsmanna FFÍ. Þar segir að félagið muni sjá um að innheimta allar launakröfur, orlofskröfur og kröfur á uppsagnarfresti í þrotabúi WOW air og/eða hjá Ábyrgðarsjóði launa. Þeir vextir sem lánið mun bera eru þeir sömu og launakrafan sjálf ber og munu þeir greiðast af Ábyrgðarsjóði launa. Félagsmenn þurfa því ekki að greiða aðra vexti vegna lánsins.

FFÍ mun taka á móti félagsmönnum á milli 16-21 í húsakynnum sínum að Hlíðasmára 15 í Kópavogi. Félagsmenn eru beðnir um að koma ekki fyrir þann tíma og hafa meðferðis eftirtalin útprentuð gögn; gild persónuskilríki, afrit síðustu þriggja launaseðla frá WOW air og afrit af síðast ráðningarsamningi.