Flugfreyjur kallaðar „æluþrífarar á háum hælum“ og ,,hryðjuverkamenn“

Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, segir það hafa verið ótrúlegt að fylgjast með umræðunni undanfarna daga um kjarabaráttu flugfreyja.

Margir hafi farið ófögrum orðum um stéttina og sumir lýst yfir sérstakri ánægju með að öllum flugfreyjum Icelandair hafi verið sagt upp.

Að hans sögn hafi flugfreyjur og flugþjónar meðal annars verið kallaðar ,,æluþrífarar á háum hælum“, ,,ónauðsynlegar puntudúkkur“, ,,stífmálaðar frekjur“ svo nokkuð sé nefnt fyrir utan ,,hryðjuverkamenn“, ,,óvinir íslenskrar ferðaþjónustu“, ,,landráðamenn“ og að þau sýni ,,skýran og einbeitan brotavilja að knésetja Icelandair og knýja það í gjaldþrot.“

Flosi segir að stjórnendur Icelandair hafi með aðgerðum sínum háð eina alvarlegustu atlögu að verkalýðslfélögum sem sést hafi hér á landi. Án efa muni flugfreyjur og flugþjónar áfram sinna sínum störfum af fagmennsku.

„Það er trúlega til of mikils mælst að þau sem hafa talið sig umkomin að kasta ótrúlegum skít í flugfreyjur og þeirra störf, drullist til að skammast sín þegar starfsfólkið um borð gerir allt sem það getur til að gera næstu ferð þeirra eins örugga og þægilega og kostur er.“