Flugfreyja slasaðist á hné í innanlandsflugi þegar líkami hennar tókst á loft þar sem hún bar fram drykki og kom hún svo illa niður að hún marðist illa.
Þetta kemur fram í frétt mbl.is.
Það segir að síðustu vél Flugfélags Íslands til Akureyrar hafi verið snúið við skömmu eftir flugtak frá Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi eftir að hún lenti í óvæntri og óvenjumikilli ókyrrð. Fjörutíu farþegar auk þriggja manna áhafnar voru um borð í vélinni en flestir farþegar þáðu far með vél sem fór í morgun.
Engum öðrum varð meint af en farþegunum var boðin áfallahjálp eftir uppákomuna eftir því sem fram kemur á mbl.is.