Tveir síðustu vetrarmánuðir verða skráðir í annála flugsögunnar. Aldrei hefur flugferðum Flugfélags Íslands innanlands og á milli Íslands og Grænlands verið aflýst jafn oft á tveggja mánaða tímabili og í byrjun þessa árs, samkvæmt samantekt félagsins sem hringbraut.is ókaði eftir. Tölurnar liggja nú fyrir. Í janúar og febrúar í ár hefur samtals 313 flugferðum verið aflýst á vegum flugfélagsins á flugleggnum milli Reykjavíkur, Ísafjarðar, Akureyrar og Egilsstaða, svo og Grænalands en þangað heldur félagið uppi reglulegu áætlunarflugi. Það þýðir að jafnaði 10 aflýstum flugferðum á dag fyrstu tvo mánuði ársins. Sömu mánuði á síðasta ári var samtals 195 ferðum aflýst, 106 ferðum sömu mánuði ársins 2013 og 208 á sama tíma 2012. Á þessum fjórum árum sker yfirstandandi ár sig því rækilega úr. Ef þrjú síðustu ár eru reiknuð saman kemur í ljós að ferðum hefur að meðaltali verið aflýst um 170 sinnum í janúar og febrúar, eða nálega helmingi sjaldnar en gerst hefur í byrjun þessa óveðursárs.
Flugferðum aldrei oftar aflýst
Fleiri fréttir
Nýjast