Skúli Mogensen stofnandi WOW air sér fyrir sér jafnvel tvöföldun á flota félagsins á næstu árum, að því er kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins í dag um flugflota íslensku flugfélaganna.
Þar kemur fram að gangi áform Icelandair Group, Primera Air og WOW air eftir gætu nærri 150 farþegaþotur verið í rekstri félaganna innan fárra ára. Auk þess eru íslensku vöruflutningafélögin tvö í miklum vexti, Air Atlanta Icelandic hefur nú 14 þotur og Bluebird Cargo 8 þotur.
Primera Air sér fram á að vera með 30-40 þotur eftir þrjú til fjögur ár. „Það á sér stað ákveðin bylting. Nýju þoturnar gera lággjaldaflugfélögunum mögulegt að fara inn á þessar lengri leiðir sem hafa ekki verið hagkvæmar hingað til,“ segir Hrafn Þorgeisson , forstjóri Primera Air, og vísar m.a. til flugs frá Austur-Evrópu til Asíu.